Kvennadeild slysavarnarfélagsins Landsbjargar í Bolungarvík færði nemendum 1. – 4. bekkjar Grunnskóla Bolungarvíkur endurskinsbakpoka að gjöf í dag. Er það von félagsins að gangandi börn verði sýnilegri í umferðinni á leið sinni til og frá skóla og tómstundum. Félagið stefnir á að framvegis fái nemendur 1. bekkjar endurskinspoka að gjöf við skólabyrjun.
Lesa meiraHinn árlegi 112 dagur var haldinn á öllu landinu í dag. Áherslan í ár var lögð á sýnileika óvarða einstaklinga þ.e. gangandi/hjólandi vegfarenda. Slysarvarnardeild kvenna í Bolungarvík og Björgunarsveitin Ernir tóku þátt með því að vera til staðar á fjölförnustu stöðum bæjarins í dag, kynna daginn og dreifa endurskinsmerkjum. “Endurskin virka eins og blikkljós þegar…
Lesa meiraSlysavarnafélagið Landsbjörg fagnaði 90 ára afmæli 29. janúar síðastliðinn. Slysavarnafélag Íslands var stofnað 29. janúar 1918 en stofnun þess markaði upphaf skipulags björgunar- og slysavarnastarfs á Íslandi. Hinn 2. október 1999 sameinuðust Slysavarnafélag Íslands og Landsbjörg – landssamband björgunarsveita, í ein slysavarna- og björgunarsamtök, Slysavarnafélagið Landsbjörg. Afmælinu var fagnað um allt land mánudaginn 29 janúar…
Lesa meiraSlysavarnafélagið Landsbjörg og félagseiningar þess hafa í mörg ár stuðlað að aukinni notkun almennings á endurskinsmerkjum, meðal annars með því að gefa endurskinsmerki. Síðastliðinn föstudag fóru fulltrúar Slysavarnardeildar kvenna í Bolungarvík í Grunnskóla Bolungarvíkur og færðu nemendum í 1. – 7. bekk endurskinsmerki að gjöf, einnig var farið í leikskólann Lambhaga þar sem nemendum þar…
Lesa meiraSlysavarnadeildin í Hnífsdal tók í dag í notkun kar sem inniheldur 11 björgunarvesti af öllum stærðum og staðsett er á bryggjunni í Hnífsdal. Fyrrverandi formaður deildarinnar Páll Hólm átti hugmyndina en þetta er gert í hans minningu. Mæðginin Guðrún og Rúnar Hólm opnuðu fyrir notkun karsins en viðstaddar voru deildir frá Bolungarvík, Ísafirði og Hnífsdal.…
Lesa meiraÍ dag var hjóladagur Grunnskólans og af því tilefni gaf slysavarnadeild kvenna nemendum i 5. bekk reiðhjólahjálma. Farið var í alla bekki á mið- og yngstastigi og hjálmar skoðaðir og hjálpað til við að setja þá rétt á höfuð nemenda. 7. bekkur útbjó hjólabraut og þegar bekkirnir voru búnir að fara í gegnum brautina þá…
Lesa meiraBúist er við stormi á Vestfjörðum í nótt allt að 20 m/s samkvæmt veðurstofunni. Munið að binda allt lauslegt og taka inn það sem hægt er að taka inn.
Lesa meiraNýja heimasíða Landsbjargar í Bolungarvík verður opnuð kl: 15:00 í dag laugardag 29. apríl á afmælisdegi Slysavarnadeildarinnar Hjálpar sem stofnuð var á þessum degi árið 1933. Hönnuður síðunnar er Auður Hanna Ragnarsdóttir
Lesa meiraSlysavarnadeild kvenna færði Unglingadeildinni sex þurrgalla, tíu hjálma ásamt skóm og hönskum að gjöf í gær. Það var Ragnheiður I. Ragnarsdóttir sem afhenti Gareth Rendall gjöfina og unglingar klæddu sig í gallana.
Lesa meira