Í dag var hjóladagur Grunnskólans og af því tilefni gaf slysavarnadeild kvenna nemendum i 5. bekk reiðhjólahjálma. Farið var í alla bekki á mið- og yngstastigi og hjálmar skoðaðir og hjálpað til við að setja þá rétt á höfuð nemenda. 7. bekkur útbjó hjólabraut og þegar bekkirnir voru búnir að fara í gegnum brautina þá tóku þeir þátt í smá getraun en verðlaun voru vett í hverjum bekk. Lögreglan kom og skoðaði hjólin og fengu nemendur miða á hjólin sín.