Hopp á trampólíni er frábær líkamsþjálfun, þjálfar jafnvægi og samhæfingu hreyfinga auk þess að styrkja vöðva og bæta geð. Mikilvægt er þó að hafa öll öryggismál í lagi til að koma í veg fyrir slysin sem eru alltof mörg og verða flest vegna rangrar notkunar trampólínsins.

Góðir punktar um trampólín:

Mjög mikilvægt er að fara eftir þeim leiðbeiningum sem fylgja trampólíninu þegar það er sett upp.

Autt svæði verður að vera undir trampólíninu og í a.m.k. 2,5 metra í kring.

Best er að staðsetja trampólínið á grasi, það minnkar líkur á slysum ef dottið er út fyrir trampólínið.

Festið trampólínið tryggilega niður, til dæmis með u-laga járni sem stungið er yfir fæturna og niður í jörðina.

Öryggisnet þarf að vera á trampólíninu, það minnkar líkur á að dottið sé út af því, en við það verða oft alvarleg slys.

Gormar eiga að vera heilir og jafnstífir, ef það er ekki, þá aukast líkur á að þeir sem nota trampólínið misstígi sig.

Fylgjast þarf með að rammi og undirstöður trampólínsins séu í lagi.

Dúkur verður að vera yfir gormunum.

Trampólín eru gefin upp fyrir ákveðna hámarksþyngd og á henni byggist stöðuleiki trampólínsins.

Umgengnisreglur verður að setja á trampólíninu og skiptir þar mestu að aðeins einn hoppi í einu.

Mikilvægt er að taka trampólínið inn yfir vetratímann. Þau taka á sig mikinn vind og fjúka auðveldlega.

Megið þið eiga ánægjulegar stundir við leik.

Efnið er fengið af vef Landsbjargar

Til baka á