Hopp á trampólíni er frábær líkamsþjálfun, þjálfar jafnvægi og samhæfingu hreyfinga auk þess að styrkja vöðva og bæta geð. Mikilvægt er þó að hafa öll öryggismál í lagi til að koma í veg fyrir slysin sem eru alltof mörg og verða flest vegna rangrar notkunar trampólínsins.
Mjög mikilvægt er að fara eftir þeim leiðbeiningum sem fylgja trampólíninu þegar það er sett upp.
Autt svæði verður að vera undir trampólíninu og í a.m.k. 2,5 metra í kring.
Best er að staðsetja trampólínið á grasi, það minnkar líkur á slysum ef dottið er út fyrir trampólínið.
Festið trampólínið tryggilega niður, til dæmis með u-laga járni sem stungið er yfir fæturna og niður í jörðina.
Öryggisnet þarf að vera á trampólíninu, það minnkar líkur á að dottið sé út af því, en við það verða oft alvarleg slys.
Gormar eiga að vera heilir og jafnstífir, ef það er ekki, þá aukast líkur á að þeir sem nota trampólínið misstígi sig.
Fylgjast þarf með að rammi og undirstöður trampólínsins séu í lagi.
Dúkur verður að vera yfir gormunum.
Trampólín eru gefin upp fyrir ákveðna hámarksþyngd og á henni byggist stöðuleiki trampólínsins.
Umgengnisreglur verður að setja á trampólíninu og skiptir þar mestu að aðeins einn hoppi í einu.
Mikilvægt er að taka trampólínið inn yfir vetratímann. Þau taka á sig mikinn vind og fjúka auðveldlega.
Megið þið eiga ánægjulegar stundir við leik.
Efnið er fengið af vef Landsbjargar
Til baka á