Slysavarnadeildin Ásgerður í Bolungarvik afhenti þriðjudaginn 10. júní, börnum á Glaðheimum Barnakassa, þ.e. Sjúkrakassi. Markmiðið með Barnakassanum er að bjóða upp á skemmtilega og líflega hönnun sem höfðar til barna og sáraumbúðir sem eru lagaðar að líkamsstærð barna svo að þær trufli ekki eðlilega hreyfingu, séu þægilegar í notkun og stuðli að því að sárin grói fyrr. Skemmtilega myndskreyttar umbúðir hjálpa svo til við að draga úr hræðslu þegar gera þarf að sárum og kalla jafnvel fram smá bros hjá yngstu kynslóðinni.
Myndirnar á kössunum eru teiknaðar af börnum.




